We\'re into showers:'D

Eydís og Rakel á urrrrandi siglingu:'D

30.04.2007 15:17:46 / Rakel

Sumar!! :D:D

 

 
 
http://thresca.deviantart.com/

 

Já þá er komið sumarfrí og rooosa gaman!!... er að deyja úr gleði :D ég er loksins búin með þennan helvítis skóla.. að minstakosti í bili... reyndar eru einhver leiðinda próf eftir en ég þarf allavegana ekki að láta mér leiðast í skólanum heilu dagana leingur :D! YAY!!

 

hmmm... já... ætli maður skrifi ekki smá sona týpískt og leiðinlegt blogg? ;P

 

Ég, Eydís, Lilja og Aron hresstum aðeins upp á vinskapinn á föstudagskvöldið og fórum auðvitað að því tilefni út í horn að kaupa okkur Mountain Dew og Sjerne Mix sem við mauluðum síðan á leiðinn heim til Lilju. Þar fór Lilja í þennan líka hörkuspennandi leik http://leikjanet.is/?gluggi=leikir_spila&leikur=1009 sem ég get hiklaust mælt með;P hehe... og við skemmtum okkur við það að horfa á hana í því... rosalega uppbyggjandi og allt það... Síðan Kom Haffi, sem ætlaði að koma mér eithvað á óvart, að sækja mig og fór með mig í Bíó. Þá var hann semsagt búinn að fá Sigga sýningarstjóra til þess að leyfa okkur að koma í bíóið eftir lokun og horfa á 300. :D!! Þetta er algjörlega meeergjuð mynd!! skylda að sjá hana!!

 

Allavegana.. .síðan fór ég á tónleika með Gunna, Einari og Tobby á laugardaginn... Samfylkingartónleikar... hrútleiðinlegir er það eina sem lýsir þeim tónleikum... ekki það að það voru svo sem ágætar hljómsveitir að spila þanna... Baggalútur, Spreingjuhöllin og Soundspell og einhverjir en það var bara svo engin stemming þarna og alveg rosalega þreytandi sigur rósar ripp off að spila inn á milli að við fórum bara heim þegar baggalútur var búinn...

 

Sunnudagurinn fór svo að mestu leyti í svefn og vinnu en við Eydís hittumst samt um kvöldið til þess að æfa okkur fyrir munnlegt dönsku próf 8) það var svolítið skrautlegt.. hehe og við komumst í gegnum það með glæsibrag í dag.. eða við komumst allavegana í gegnum það.... :$ ;)

 

Svo er það bara vinna og læra fyrir próf... mig langar samt svo sjúklega að fara á trampólínið sem krakkarnir fengu í sumargjöf en mamma vill ekki setja það upp :(

oh well... þá fer ég bara að gera eithvað annað... kanski maður skelli sér í gítartíma ef maður nennir... ;)

 

og að lokum smá skilaboð...

ALLIR AÐ TAKA FRÁ FÖSTUDAGINN 11. MAÍ!!!!!

frekari upplýsingar á þessari síðu á næstunni ;)

 

Rakel

 

 

http://juxxo.deviantart.com/

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.04.2007 15:49:33 / Rakel

TIL HAMMÓ MEÐ AMMÓ!! ;P

http://pinkcakebox.deviantart.com/
 
 
Til hamingju með17 ára afmælisdaginn BimOo og Addi!! :D
 
 
Já þessi helgi var bara nokkuð skemmtileg þrátt fyrir að hafa verið vinnuhelgin mín :D...
 
Á laugardagskvöldið var haldið upp á afmælið hennar BimOo heima hjá henni og auðvitað skeltum við Eydís okkur... Það var farið í pottinn og verið í pottinum... og svo verið í honum pínu meira... :lol: eða reyndar vorum við BimOo þær einu sem höfðu gert ráð fyrir því að fara í pottin... en því var bjargað.. Árdís fékk bara lánað bikiní og restinni var bara hent oní pottinn í öllum fötunum XD... allveg ótrúlegt hvað fólkið var samt sátt með það eithvað.. hehe
semsagt rosa gaman :D
 
Síðan fór reyndar sunnudagurinn allur í vinnu og leti :( ... HATA sunnudaga...
 
Svo í gær skelltum við Eydís okkur í bæinn með Einari og Fúsa og fórum á tónleika :D... Gordon Riots, Shogun, Munnríður og Celestine.. Mjög góðir tónleikar!... Gunni og Ingi mættu líka á svæðið og Lóla, Alma og Jói létu sig ekki vanta... :) síðan var bara slammað á fullu og farið í moshpitt, byrjaði á einum aumingjalegasta moshpitt sem ég hef orðið vitni af... s.s. Einar, Fúsi og Jói að hrinda hvor öðrum á meðan ofursvölu MHingarnir stóðu og gláptu illilega á þá. En svo ákváðu nokkrir kátir harðkjarnar að joina þeim og það var moshpittast þangað til að Gunni og Fúsi skölluðu hvorn annan og Gunni rotaðist næstum XD :O
Já og svo tókk ég rækilega í lurginn á Einari sem var eithvað að stríða mér og kíldi hann bara í nefið sem fossblæddi síðan úr :O (vil taka það fram að þetta var ALGJÖRLEGA órvart!!... og allveg drepfyndið :$ )
 
Anywho... síðan tók bara skólinn við í dag... :( Oh hvað ég er orðin leið á þessum skóla!! Get ekki beðið þangað til að þetta verður allt búið!! :whut: bara 1 vika eftir og síðan próf!!
 
Allavegana þá er þetta held ég bara komið gott í bili og við setjum máske einhverjar myndir inn á síðuna úr ammælinu ;P
 
 
Rakel
 
 
www.blog.central.is/-naughty
P.S. Flott blogg Eydís!! ;)

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.04.2007 14:21:36 / Eydis

Ahojj :D

hææó Eydís hér :haha:

jés.. ég ætlaði að blogga hér, eða semsagt bara copya bloggið sem ég var að enda við að blogga á síðunni minni www.folkerfibl.central.is yfir á þessa síðu,, eeen nei það er ekki hægt að copya það yfir :O þannig að þið lesendur góðir verðið bara að drullast til að fara á mína síðu og lesa bloggið þar :haha:

Takk fyrir! :haha: Blee 8) Eydís :D

haha :'D


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 15:23:56 / Rakel

Helgi!! XD

 

 

 http://www.deviantart.com/deviation/50310075/
 
 Þá er það Rakel hér aftur að reyna að halda þessari síðu gangandi... mér finst nú að það sé komið að henni Eydísi.. en ykkur? :O
 
Já þá er bara alveg að koma helgi!... það ætla víst einhverjir að drífa sig í útilegu í Þrastarskóg um helgina þrátt fyrir rigningu og kulda eins og sannir Íslendingar  og ég segi bara góða skemmtun!... ég ætla bara að halda mig við afmælið hennar BimOo takk fyrir... og talandi um það.. fyrir þá sem ætluðu að koma og hlusta á bandið okkar spila verða því miður fyrir vonbrigðum því að ekkert húsnæði fanst og ekki tóskt heldur að fá skemmtanaleyfi þannig að það verður bara brjálað party heima hjá BimOo sem er að verða 17 og 18 ára!! hvorki meira né minna... þannig að það er algjör skyldu mæting!! ;)  
 
Annars er ég búin að vera alveg rosaleg dugleg í dag og skellti inn nokkrum myndum ;) svona ef einhver hefur áhuga... Þettu eru semsagt myndir sem hún BimOo okkar tók af bandinu okkar eina helgina og heitir linkurinn Man ekki... Flúðir  þannig að endilega kíkið á það
 
Annars hef ég ekki mikið meira að segja í bili...!!
 
 
Rakel!
 
 
 
 
http://www.myspace.com/manekkihvad 

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 13:54:22 / Rakel

SUMAR!!

 
http://www.deviantart.com/deviation/47470562/
 
 
Jæja!! er ekki kominn tími til þess að fara að blogga? Ha? Eydís?... hehe..
 
Allavegana þá er sumardagurinn fyrsti í dag og ég get ekki annað sagt en að ég sé nokkuð fegin!... það er komið nokkuð helvíti gott af þessum andskotans vetri!! urr! :frown:
 
 Annars er ekki mikið að frétta... sem er kanski ástæðan fyrir því að við bloggum svona lítið :/ hehe... njah... það sem er búið að gerast núna síðustu mánuði eru m.a. ammælið hjá Fúsa og Heimi, hljómsveitinn Man ekki hvað þeir heita ( www.myspace.com/maekkihvad ) keppti í músíktilraunum ásamt Narfi og öðrum góðum ;P, og svo náttúrulega nokkur allveg kyngi mögnuð Fúsa party ;P. kanski maður setji inn einhverjar myndir af þessum viðburðum ef maður nennir ;P...
 
Það sem er frammundan er síðan afmælið hennar BimOo sem verður haldið núna á laugardaginn og verður það hljómsveitin Man ekki hvað þeir heita sem treður upp (ef að það finnst húsnæði XD). Þannig að allir þangað og TIL HAMINGJU MEÐ AMMÆLIÐ Á MÁNUDAGINN BIMOO!!! :D
 
Þá held ég bara að þetta sé komið gott í bili enda var þetta blogg aðalega svon til að láta fólk vita að við erum ekki dauðar ;p...
 
 
Rakel..
 
 
http://www.deviantart.com/deviation/42868296/

*Gleðilegt Sumar!!*


» 1 hafa sagt sína skoðun

08.01.2007 03:50:54 / Rakel

Argh!

 



Mikið ofboðslega hata ég andvökunætur!!... Ég er farin að halda að það sé eithvað að mér... 8| Ég meina þetta getur bara ekki verið eðlilegt..!!... Núna er klukkan orðin hálffjögur og ég er búin að vera að reyna að sofna síðan klukkan 12.. hvernig stendur eiginlega á því að ég er ekki enþá sofnuð?!?! Ég er allavegana búin að sjá það að þetta hreinlega gengur ekki lengur... þannig að ef að þú ert að lesa þetta og kannt eithvað snilldar ráð sem fær þig alltaf til að sofna þá láttu mig vita 8|



     Já þetta er erfitt líf... Svo er bara allt að fara að gerast á morgun... Skólinn er auðvitað að fara að byrja aftur og ég er sona mis spennt... hlakka til að hafa eithvað annað að gera á daginn en að vinna... og svo verður allveg frábært að hitta allt fólkið aftur. Hinsvegar er mér allveg óskiljanlegt hvernig hægt er að búast við því að þúsundir nemenda nái að kaupa allar sínar bækur úr einni pínulittlri bóksölu með ofurfáum starfsmönnum á undir 50 mínútum... :| Mig hlakkar svo sannarlega ekki til að þurfa að standa í biðröð allan þennan tíma bara til þess eins að mæta bókalaus í tíma vegna þess að þegar röðin kom loks að mér var klukkan orðin 9:55 8| Já þetta er allveg hreint stórfurðuleg bjartsýni!!

 

Og nú held ég að það sé kominn tími til að fara að gera eina lokatilraun til þess að sofna... svona rétt áður en ég þarf að vakna í skólann :|

 

 



Góða Nótt Gott Fólk!

 


 

 


 

N/P Blank Page - The Smashing pumpkins

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 03:14:09 / Eydis

Hæds :D

Eydís hér 8)

já einsog kannski glöggir lesendur sjá þá erum við Rakel báðar búnar að gera svona link um okkur :D

sem er alveg awsome :D

uhm já einsog kannski flestir vita eru jólin og áramótin ný búin :D já btw þá vil ég óska öllum gleðilegs nýs árs :haha: annars er jólafríið búið að vera voða nice hjá mér :D hefði samt verið til í að fá meiri vinnu.. :$ en jáá.. ég fékk líka margt fallegt í jólagjöf sem ég nenni ekki að telja hér upp 8-)

jáá áramótin hjá mér voru ekki þau skemmtilegustu samt.. 8-) nenni samt ekki að seija frá þeim hér 8-) hehe..

jam svo fer skólinn að byrja aftur bráðum 8-) mér bæði kvíður fyrir og hlakkar til, veit ekki alveg hvort.. mér kvíður samt mest fyrir að þurfa að vakna á morgnanna því ég er algjörlega búin að snúa sólarhringnum við :$

En annars var kvöldið í kvöld bara hitt fínasta :D ég, Lilja og Einar vorum bara á rúntinum mest allt kvöldið og lentum í ýmsu skemmtilegu :'D fórum síðan heim til Lilju og horfðum á Joy Ride þangað til Skúli var búinn að vinna : ) þá rúntuðum við aðeins meira og svo fór ég bara heim : )

æj váá ég er orðin svo lélegur bloggari :S þetta er heavy asnalegt blogg hjá mér 8-) en whatever.. ætla að reeeeyyynaaa að vera duglegri að blogga :D haha jam gangi mér vel (Y)

en já ég nenni þessu ekki lengur:D

bless.. Eydís 8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 03:53:57 / Rakel

Seamus McClumpsy

     Rakel hér enn og aftur...  mér finst nú vera komið að henni Eydísi að fara að blogga bráðum hehe..

     En allavegana... þetta er enn ein andvöku nóttin mín og ég hef nákvæmleg ekkert að gera... ég er búin að reyna allt!  Ég er búin að horfa á sjónvarpið, lesa, vera í tölvunni og ég samdi meira að segja eitt stikki ljóð... en nei.. ég bara get ekki sofnað!!... (en hvað þetta hljómaði samt sorglega :/ )

     En já eins og ég minntist á þá samdi ég ljóð... ástæðan var að ég rakst á þessa keppni á netinu..:

ATTENTION! CONTEST!




This is the first doll I made this year.
I decided that it would be cool to give it to someone on dA as a present.
But there are too many of you and it’s hard to make a decision,
so there will be a contest.

The task is: give a name and a surname to this poor one-eyed creature
and explain to me, why you named it like this.
It means there must be a story behind.

Then my dearest siamese twin *
BellZ and I will choose the winner.
I’ll ask the winner to give me his/her postal address and
the doll will be delivered in two weeks. Ta-dah!

Deadline: there is no actual deadline, but you should be ready
with your answer in a month or so.

You may either write me a note or a comment
on this deviation with your name suggestion and a story.

+ If someone posts more than one name, I'll accept only 1st one in the list.



Be creative and…
Good luck! :aww:


Þannig að ég samdi þetta:

The Vast Void of Empty Nothingness

This is the story of the prince of
Empty Nothingness.
A strange little cat that desired nothing
but happiness.
The other cats didn't like him 'cause he
wasn't all cute and fussy.
They laughed at his strange walk and called him
Seamus McClumpsy.
Poor little Seamus was one-eyed and
mute,
and he felt that the other cats were ignorant
and rude.
So that's why he left the foggy
land
of Empty Nothingness,
And set of on a journey to find
eternal happiness.
He travelled a dangerous road
both hungry and cold
But he cept on looking
till he was weary and old.
So that's when TroubleNight found
our lonesome prince.
And she and her siamese twin
have been searching ever since,
for someone to give him enough
love and care,
so that he may find that what is so
precious and rare.
So that the lonesome prince
of Empty Nothingness..
.. may finally find
tru and eternal happiness.

And I promis you he can find it with me


His parents gave him the name Seamus. (They were ashamed of him and the name Seamus is pronounced Shame - us)
The 'other cats' gave him the nickname McClumpsy because he walked like a big bad man. (When I tried to remember how big bad men walk, Jack the Pumpkin King from the Nightmare Before Christmas popped into my mind for some strange and unknown reason , and his walk always seemed a little clumpsy to me ^^)

With love... Rakel

og nú vil ég fá ykkar álit... ^^ 

VERIÐ HREINSKILIN!!


» 9 hafa sagt sína skoðun

28.12.2006 10:51:26 / Rakel

Duo

"we're a duo, its truo, a pair of lonely hearts who were meant to be a two... if you get an itch attack Ill be there to scratch you back cause thats what being friends is for..."
:hug:
 

Tíhí... fann þennan texta á netinu eikkerstaðar og fanst hann passa svo vel við mig og Eydísi.. ^^

(elsta mynd í heimi btw... á enga aðra :S )

 

Annars er bara ósköp lítið að frétta.. nema það að ég get ekki sofnað og ákvað þessvegna að reyna að gera eikkað inn á þessari blessuðu síðu okkar sem enginn fer inná hvort sem er.... :$ hehe

Hmm... hvað er búið að gerast?... ja jólin eru náttúrulega ný búin og allir búnir að fá pakkana sína og eru sona mis ánægðir :|  Ég er annars bara nokkuð góð... fékk allveg frábæra sæng frá ma og pa sem er allveg ýkt þægileg :D síðan fékk ég sniðuga kjáwna bók frá Eydísi (bwahahahahaha!!) og eyrnalokka.. síðan gaf Lilja mér fínindis geisladisk með Johnny Cash, svo fékk ég belti frá Tobby og flottasta glas í heimi frá BimOo ^^  já og svo fékk ég allveg GEÐVEIKT flott málverk frá honum frænda mínum ( XDXD ) hehe takk Andri ;)

Annars er búið að vera allveg drullu leiðinlegt hjá mér í þessu jólafríi... hef ekkert að gera nema sofa éta vinna éta sofa.... oh ég er orðin svooo þreytt á þessu... er eiginlega bara farin að hlakka til að komast í skólann aftur.. :D  Það verður samt örugglega eikkað fjör um áramótin.. eða ég ætla rétt að vona það!!

Allavegana þá hef ég bara því miður (meira sona fyrir mig frekar en einhvern annan) ekkert meira að segja og verð að fara að finna mér eithvað annað að gera.... 8|

BLESS!

 

Winter Solitude by 'saligia: http://www.deviantart.com/deviation/29103616/

Smá sona til að minna fólk á það hvernig allvöru snjór lítur út ;)

n/p Sagan af Jesúsi - Baggalútur


» 2 hafa sagt sína skoðun

04.12.2006 13:46:26 / Rakel

Hvíl í friði Ásgeir†

         Ég þekkti  hann Ásgeir ekki mikið.  Ég hafði bara hitt hann nokkrum sinnum en eins og svo margir hafa sagt þurfti maður ekki að hitta hann oftar en einu sinni til þess að vita að hann var yndisleg manneskja sem hugsaði alltaf fyrst og fremst um vini sína.  

     Ég vildi aðalega votta fjölskyldum og aðstandendum sem tengjast þessu hræðilega slysi samúð mína, og þá sérstaklega honum Þóa.  Ég vona að þú vitir að þú átt helling af vinum sem eru meira en tilbúnir að standa við bakið á þér í gegnum þetta allt saman. 

Rakel.


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.11.2006 23:20:11 / Rakel

PARTY!!

Jahá ég er að fara að skrifa firsta bloggið mitt á þessa síðu í alltof langan tíma...

     Eins og Eydís sagði í blogginu hérna fyrir neðan þá skelltum við okkur í bæinn um síðustu helgi :D Við hittum Þorbjörgu og Björk og skelltum okkur á búðarrölt....

     Nokkrar skemmtilegar staðreyndir úr þeirri ferð:

     * Við komumst að því að það er ekki hægt að fara með Eydísi og Björk á kaffi hús... þær eyddu mestöllum tímanum í það að sötra kakóið sitt með röri og gera sona sog hljóð eða blása í það til að gera bubblur,,, :|

     * Við skelltum okkur inn í Ósóma þar sem að gaurinn sem hannar og býr til allt ósóma dóteríið fræddi okkur um það að Eydís ætti fræga tösku... hann hafði neblinlega gert þessa tösku handa vini sínum en konan seldi Eydísi töskuna haf'ði ekki haft hugmynd um það... og til að toppa allt þá er myndin á töskuni sama myndin og gaurinn er með tattooaða á hendina á sér!! Til hamingju með það Eydís mín!

     * Rakel og Eydís sveitalúðar fengu loksins að vita hvar alþingishúsið væri, eftir mikkla leit (ekki spurja)

     *Þær uppgvötvuðu það líka að það er ómögulegt að villast í Reykjavík ef maður virkalega ætlar sér það (aftur ekki spurja!)

     Svo gerðist margt annað sniðugt í þessari blessuðu ferð en ég einfaldlega nenni ekki að rifja það upp þar sem ég er að deyja úr þreytu!

     Og afhverju er Rakel þreytt?

     Það er afþví að Rakel og Eydís ( ásamt Esra kærasta ;) ) skelltu sér á djammið í gær... Við byrjuðum heima hjá Diljá þar sem Techno tónlistinni var blastað ( :S ) . Síðan þegar fólk þreyttist á því og Mosó liðið ver farið aftur í bæinn þá ákváðum við að skella okkur bara til hans Bjössa partyljóns ;) . Gaman að því... þar var djammað við aðeins meira upplífgandi tónlist og ég held að flestir hafi bara skemmt sér nokkuð vel... kanski fyrir utan greyið Óla sem ældi allt út.. hehe....

     og svo skellti ég mér í vinnuna í dag sem er önnur ástæðan fyrir þreytu minni... en núna ætla ég að hætta þessu rugli og kveðja

 BLEE!!

N/P Welcome To The Black Parade - My Chemical Romance

Breathing in fumes  


» 3 hafa sagt sína skoðun

29.10.2006 11:39:27 / Eydis

Leiiiðisst :O

já zomigad.. ég er vöknuð alltof snemma á sunnudegi :O átti að farað vinna kl 11 en þegar ég kom var yfirkonan búin að biðja Elínu um að vinna fyrir mig :/ i don't know why :S en já allavega þá fór ég aftur heim og er að deyja úr leiðindum :/ og er að farað vinna kl 2 *ewóóóó*

en já þetta er bara búið að vera fínasta helgi :D nenni samt einganveginn að seija frá henni :/ sorry :D haha nema ég fór í mitt fyrsta útivistarbann í gær XD en ég held að ég sé ekki lengur í því :D

anyways þá ætlum ég og Rakel líklega að fara í bæinn á morgun :D:D yaaayyyy:D

en já ég nenni ei að blogga meira :O þannig..

Bless8) Eydís..


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 00:30:39 / Eydis

Long time no see?

Hæsor :D haha jáw það er orðið soldið mikið langt síðan var bloggað eða eitthvað gert við þessa síðu:O :D en semsagt já í sameiningu höfum ég og Rakel ákveðið að reyna að byrja aftur með þessa síðu :D jííí :D gángi okkur vel :$

Anyways þá veit ég ei hvað skal seija:O átti afmæli seinasta laugardag!! :D jééé:D og svo um helgina er langa helgin :D semsagt frí í skólanum föstud. og mánud.. :D geðveikt gaman :D en ég er að vinna :( oh já ég ætlaði með Lilju á Akureyri um helgina en ma og pa leyfðu það ei :( og þá hefðum við getað farið á bretti, eitthvað betra heldur en á stórahól í fyrra XD :D:D hlakkar svooo mikið til:D en já við förum bara í bláfjöll:D

Það hefur mest bara verið skóli hjá okkur undanfarið.. :$ en samt geðveikt mikið að gerast um hverja helgi í geðveikt langan tíma:D:D sem mér finnst gaman :D ewóóó :D

haha en já ég nenni ei að blogga meira :D

bless8) Eydís..


» 2 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 14:55:21 / Eydis

Pronto ferð í bæinn:D ..ooog Píanó! :D

jájá Pronto félagið (semsagt ég, Rakel og Skúli) skellti sér í bæinn á laugardaginn:D byrjuðum á því að fara í kringluna að fá okkur kaldann Subway:S svo röltum við um í kringlunni og svona gaman:P fórum svo á laugarveginn og sáum margt sniðugt þar:D svo skelltum við okkur í kolaportið og hittum þar vin okkar hann Silla og bróðir hans:P tók mynd af þeim og spurði Silla hvort hann væri frá Egilsstöðum:D jebb svo hittum við líka hann Gísla:D og svo fórum við öll, semsagt ég, Rakel, Skúli, Gísli og Sandra á Pizza Pronto og keyptum okkur þar eina af bestu pizzum sem ég hef smakkað!! mæli eindregið með þessum stað;) en já svo fórum við á Ingólfstorgið og vorum þar í pínu stund:P svo skelltum við okkur á Gaukinn:D mættum soldið snemma reyndar:$:D svo byrjuðu tónleikarnir og váá ég elska Sign live:D:D:D og nevolution voru líka geðveikt góðir:D svo eftir að Sign voru búnir að spila þá voru þeir að árita plaggöt og ég lét líka árita silfurpilsið mitt og símann minn:D:P en váá þetta voru GEGGJAÐIR tónleikar og ég hef aldrei skemmt mér eins vel á tónleikum:D:D en já svo skutlaði Helena mér, Rakel og Söndru á BSÍ og við tókum 8 rútuna heim:D svo bara fór ég aðeins til hennar Rakelar þegar við komum heim:D

já þetta var bara geggjuð ferð og Pronto verður að fara að skella sér aftur saman í bæinn eða eitthvað sniðugt fljótlega:D

En já ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili:D

hehe ætla samt að láta myndina af honum Silla fylgja með:D hehe

Bless8) Eydís..


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.05.2006 22:42:25 / Eydis

Oooog Píanó:D

Sælt veri fólkið:D já það er Eydís sem talar:D tími til kominn.. ég verð að viðurkenna að ég hef ekki verið mjög virk í þessu undanfarið:D en ég ætla að reyna að gera eitthvað í því:P

En já þá eru SAMræmdu prófin loksins búin:D:D:D og svo fórum við í skólaferðalagið á miðvikudaginn og komum heim í dag:P þetta var alveg ágætt bara:D mikill húmor þarna og svona gaman:D við fundum geðveikt sniðugt herbergi í húsinu sem við gistum í og fundum helling af sniðugu dóti þar:P koma kannski myndir af því á síðuna ef ég nenni:D og já við fórum í siglingu um breiðafjörðinn og þar var veitt svona skeljar og krabbar og krossfiskar úr sjónum.. og okkur var boðið að borða úr skeljunum og ég og Rakel fengum okkur loksins til að smakka þetta eftir mikla umhugsun:P og ojjj þetta var viðbjóður..það var svona sjóbragð af þessu og þetta var svona slímugt og ógeðslegt:| gat enganveginn kingt þessu..ojbara:$ en já svona annars var þetta var bara hin fínasta ferð nema að greyið Ingvar viðbeinsbrotnaði:( sem var ekki nógu gott.. vona bara að honum batni fljótt:D

En já svo á morgun þá ætla allavega ég, Rakel og Skúli í bæinn á laugarveginn og kringluna og svo (ásamt fleirum) förum við á Sign tónleika:D get ekki beðið:D:D

En já ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni:P blogga aftur eftir tónleikana:D:D

Bless8) Eydís..


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Leikir